Saturday, April 14, 2007

a picture is worth a thousand words...


hæbbs ákvað að skella inn mynd af herberginu á spítalanum og gömlu konunni....þar sem ég er komin með myndavél koma mjög fljótlega inn einhverjar myndir af daglega lífinu í ungó pungó ;)
Lifið heil
Dr.M

Sunday, April 8, 2007

heilagur sannleikur og ekkert annað!

jæja gott fólk nú hef ég svo sannarlega sögu að segja ykkur!
Nema hvað að ég ákveð nú loks að fara að hugsa aðeins um sjálfa mig og fara til læknis útaf psoriasisinu og fá krem og svona. Ég mæti og býst nú bara við því að hún gefi mér lyfseðil og segji mér að hætta að reykja, sem er nú svona venjan þegar ég fer til læknis, nema hvað að hún segjist bara vilja leggja mig inn í 4-5 daga í meðferð! ójó mmedd-i-ferdd seeáá og ekkert annað, og ég bara geri eins og hann vinur minn Salomon Gustafsson og segji bara já og amen.
jæja ég mæti á föstudaginn tilbúin í slaginn og tala við einhvern lækni sem tjáir mér það að ég geti nú samt ekki byrjað í ljósameðferðinni fyrr en á þriðjudag þar sem það eru nú páskar og allt það. Ok hugsa ég, finnst þetta nú svoldið spes þar sem ég sagði nú við lækni nr.1 að þetta væri tíminn sem ég kæmist útaf skólanum. Jæja stelpan kominn inn á spítalann og búin að fá krem og eina pillu og þvílíkt tilbúin í meðferð.
Jæja aðeins um aðstöðuna, ég er eins og fyr hefur fram komið í Unverjalandi og húðdeildin er...tja best að lýsa því þannig að ef þið sjáið fyrir ykkur spítala í seinni heimstyrjöldinni (svona að undanskildum slösuðum og deyjandi hermönnum) þá var mín deild nákvæmlega eins! Ójá lífið í Austur-Evrópu er sko eintómar dansandi rósir!
Ípínulitla herberginu voru fimm rúm, við vorum fjögur, ég ,gömul kona og lítill strákur (7ára) og mamma hans. Þau tala að sjálfsögðu ekki orð í ensku og ég er mállaus í ungversku nema þegar kemur að því að panta mér að borða! hehe en eins og gefur að skilja þá náttúrulega glóir af mér hversu fáránlega hress og skemmtileg ég er og þau gera ekki annað en að reyna að spjalla við mig, litli strákurinn sjúkur í að læra einhver orð á ensku og ekki minnkuðu vinsældir mínar þegar ég dró upp fartölvuna! Það var nú bara þannig að ég gat ekkert horft á neitt án þess að hann horfði líka! Svo leyfði ég nú honum og gömlu konunni að horfa á Litlu Hafmeyjuna á ungversku og já þau elskuðu mig ;).
Þegar þarna er komið við sögu er ég búin að vera eina nótt og klukkan er að ganga 5 á laugardeginum og öll meðferðin só far var krem tvisvar og þrjár pillur! ég var nú orðin nett pirruð á þessu, það hlyti nú einfaldlega að vera meiri ástæða fyrir því að ég var þarna en þetta! Um þetta leytið koma Elma og Inna í heimsókn og við sitjum úti að spjalla um þetta þegar út kemur einn læknirinn (og nota bene hann talar ensku svona alveg talar ekki "talar" eins og flestir) og Inna kannast eitthvað við hann og við förum svona eitthvað að spjalla og spyrjum hann útí þetta, NEMA hvað að hann sagðist bara einmitt líka vera að pæla í því hvað ég væri að gera þarna!!! Óójá þá er það bara þannig að þessit tveir(n.b.TVEIR) læknar misskilið mig svona svakalega og haldið að ég kynni bara ekkert að meðhöndla psoriasis og það þyrfti að kenna mér að setja á mig krem og að gleypa pillu eða eitthvað álíka því engin eiginlega meðferð getur byrjað fyrr en á þriðjudag því það eru páskar!
hahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahaha svo að my knight in shining armour (læknirnr.3) reddaði því nú fyrir mig að ég færi bara heim með pillur og krem og svo mæti ég í ljósameðferð á þriðjudag... en já og þá er sagan öll í bili. En þetta er án efa eitt það fyndnast sem hefur komið fyrir mig!

segiði svo ekki að það sé ekki gaman að vera ég!
gleðilega páska elskurnar Dr.M

Sunday, April 1, 2007

lalala

Hæ hæ, jæja þá er ég bara ein í kotinu núna...Hrabbs er á Íslandinu góða að ferma bróður sinn og kemur ekki aftur fyrr en á páskadag!
En það er annars allt fínt að frétta af mér svo sem...ekkert spes..Nema á föstudaginn var svaka gaman í skólanum vegna þess að það var International Food Day! sem FMSA sem er nemendafélagið sá um... þetta var æðisleg stemming en ég held bara að myndir segji meira en þúsund orð...svo að endilega kikjið á þær hér !!

jæja veriði góð við hvort annað lömbin mín....
seinna....
Dr.M

Monday, March 19, 2007

já ég lýg því ekki!


újé já ég náði anatómíu prófinu sem er nottla ekkert nema gleði gaman og húrra fyrir mér!
Annars er maður bara hress..er bara byrjuð að læra fyrir næsta próf sem er á föstudaginn! jibbí kóla!Ég er sjáiði til í prófi/um allar vikurnar FRAM að prófaTímabilinu!! mér finnst þetta svoldið absúrt, þessi blessaða önn sem ég er á er í raun bara 22 vikna próftímabil!!Þetta er nú meiri vitleysan!
Annað í fréttum er það að ég er ástfangin...



Já ég er kolfallin, head over heels af.........



Aidan í Sex And The City!!! jesús minn ég meina það, við erum sumsé með allar sex seríurnar og erum svona að glugga í þetta svona eins og einn þátt á kveldi og erum núna sumsé í þriðju þar sem þau (Carrie og Aidan) eru kærustupar...og þetta er bara hálfvandræðalegt ég roðna og allt á meðan ég horfi á þetta! ég kom meira að segja með flörthláturinn um daginn!!!(stelpur þið vitið um hvaða hlátur ég er að tala!) þetta er nottla ekki hægt sko.....en jæja ég kveð að sinni með mynd af ástmanninum mínum...


bless bless
Dr. M ;)

Tuesday, March 13, 2007

jahá!

vó sumir ekki duglegir að blogga! en jæja maður gerir eitthvað svona við og við ;) . En já annars er bara svo vangefið mikið að gera að maður kemst bara varla í tölvuna! Ég er einmitt að fara i fyrsta anatomy prófið mitt á morgun...jæks! það er úr sumsé upper limb( efri limum) nei grín , sumsé hendin..og þá er víst ekkert annað hægt en að láta "hendur" standa fram úr ermum og "henda" sér í lærdóminn...
en já annars erum við bara hressar held ég...erum að rifja upp gúrkuspilatækni á kvöldin og svona ansi fínt bara...

en já p.s ví það er komið vor í Debrecen svo það er bara sól og svaka fínt veður! ....reyndar þá vöknuðu helvítis pöddurnar líka en jæja maður verður víst að venjast því ;)

later mi amis!

Dr.M

Monday, February 26, 2007

Helgin sem ég....

... ætlaði að gera ALLT.. liðin.. og viti menn ég gerði EKKI NEITT!!!! iss... þetta er svakalegt, vika 3 byrjuð og ég ennþá löt, já nú er um að gera að spíta í lófana og skella sér í annan gír. öss þetta er ekki hægt. En nóg um það...
Hér er allt eins... læri læri alltaf... hehe talandi um læri.. haldiði ekki að Haffi hafi boðið okkur stöllum héðan af efri hæðinni í íslenskt lambalæri í gær... uummmm vá hvað það var geðveikt gott :D át á mig gat... þurfti allt í einu að hætta því að ég var farin að svitna úr saddleika... BUT man it was worth it ;)
Annars er allt að gerast hérna hjá okkur maríu í heilsuátakinu.. eða solleis sko... við keyptum okkur hjól þegar við komum aftur (skellum myndum af fegurðinni fljótlega) og hjólum núna út um allt eins og VINDURINN!!! ó já.. maður bara varla sést, fer svo hratt ;) hehe...
já ekki nóg með það að við hjólum eins og okkur sé borgað fyrir það, ohh nei nei, við keyptum okkur matvinnsluvél í gær... nú getum við sko eldað ALLT eins og Solla í grænum kosti.. ójá...
20kg MEÐ gloss þegar við komum heim ;) hahaha
Annars er ég eitthvað í pæla í páskunum, kem örugglega heim 30.mars... ekki alveg búin að ákveða hversu lengi ég verð.... Ingubjörg, það er í þínum höndum að DRAGA mig uppá bókhlöðu því að ég VERÐ að læra eitthvað heima ;) treysti þér bara fyrir því.. hahh?
allavega... ekki neitt sérstakt meira að frétta af okkur hér.. María er á handbolta æfingu.. ekkert smá dugleg... og ég ein heima að "læra"... æjj ég er allavega að reyna;)

Dr.H

Friday, February 16, 2007

back to school....

ohh jæja... þá er fríið búið og alvara lífsins tekin við ... fríið var að öllu leiti frábært!!! ég gerði nú reyndar ekki mikið nema sofa og hvíla mig en það var eitthvað sem að ég þurfti mjög nauðsynlega :) sumarbústaðaferðin stendur að sjálfsögðu uppúr sem ein allra fyndnasta ferð sem farin hefur verið :D Svo endaði ég fríið á frábærum dögum í danmörku hjá Hauki bróður :) það var æðislegt að sja hvar hann byr og auðvitað að sjá snúllurnar mínar :)
Fór líka á djammið með Þury og Andra sem var alveg ótrúlega gaman :D haha... Haukur, Laufey, Þury og Andri ég segi bara TAKK FYRIR MIG !!! þetta var æðislegt !!
En já svo kom ég hérna út.. missti af einum degi í skólanum, og miðað við hraðann sem farið er yfir er eins og ég hafi misst af viku!! úff fúff það er sko um að gera að halda vel á spöðunum eins og hún Bogga mín segir, til að ná þessu.. já ekkert grín hér! Annars eru þessir síðustu dagar nú aðallega búnir að fara í það að gera og græja.. prenta út og koma sér fyrir... trúi því að um helgina gerist kraftaverkið og lærdóms andinn svoleiðis falli á mig ;)
Annars er nú heldur tómlegt hjá mer í kotinu, Marían mín ennþá á íslandi en sem betur fer kemur hún um helgina !! jáhá ég bíð sko spennt!
en well well ætli það sé nú ekki best að kíkja aðeins í bók...
yfir og út..
Dr.H