Monday, March 19, 2007

já ég lýg því ekki!


újé já ég náði anatómíu prófinu sem er nottla ekkert nema gleði gaman og húrra fyrir mér!
Annars er maður bara hress..er bara byrjuð að læra fyrir næsta próf sem er á föstudaginn! jibbí kóla!Ég er sjáiði til í prófi/um allar vikurnar FRAM að prófaTímabilinu!! mér finnst þetta svoldið absúrt, þessi blessaða önn sem ég er á er í raun bara 22 vikna próftímabil!!Þetta er nú meiri vitleysan!
Annað í fréttum er það að ég er ástfangin...



Já ég er kolfallin, head over heels af.........



Aidan í Sex And The City!!! jesús minn ég meina það, við erum sumsé með allar sex seríurnar og erum svona að glugga í þetta svona eins og einn þátt á kveldi og erum núna sumsé í þriðju þar sem þau (Carrie og Aidan) eru kærustupar...og þetta er bara hálfvandræðalegt ég roðna og allt á meðan ég horfi á þetta! ég kom meira að segja með flörthláturinn um daginn!!!(stelpur þið vitið um hvaða hlátur ég er að tala!) þetta er nottla ekki hægt sko.....en jæja ég kveð að sinni með mynd af ástmanninum mínum...


bless bless
Dr. M ;)

7 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með árángurinn, flott hjá stelpunni og ég er alveg sammála þér með hann Aiden

Anonymous said...

Til lukku María mín
Kveðja
Guðbjörg

Anonymous said...

Til Hamingju:D:D mógó stollt að af þér snikursnúður..
hahahhahahhahaha... lifðu hún sig svona mikið inn í þættina.. ha.... hahhahahhahah.. bara fyndin færsla hjá þér...

Anonymous said...

ég meina sykursnúður...ekki snikursnúður.. snikursnúður gæti samt verið sambland af snickersi og snúð.. snikursnúður.. ha.. pæling

Anonymous said...

híhíhí flörthláturinn :)
En frábært hjá þér með anatomy!!! til lukku englabossinn minn:)
Og boggi mongó þú ert mongó ;) hahahaha

Anonymous said...

Hann er líka alveg ótrúlega sætur og heillandi maður - slefslef

En til hamingju með anatómíuna!! Stolt af þér :)

Anonymous said...

Til hamingju ;)Greinilega kyntröll aldarinnar hér á ferð
kveðja,
Andri