Saturday, May 3, 2008

ég meina það!

já ekki er öll vitleysan eins maður ha!
jii hrikalega fyndið, áðan skrapp ég aðeins út í grænmetismarkað að kaupa stöff í kvöldmatinn. Þetta væri nú ekki frásögufærandi ef ekki hefði ég tekið eftir manni starandi á dyrabjölluna okkar þegar ég fer út um hliðið. Maður er nú öllu vanur að manni finnst svo ég tek nú bara smá sveig og hjóla í búðina. Þegar ég kem aftur sé ég að maðurinn er kominn aftur og er nú að líma eitthvað umslag á bjölluna! nema hvað haldiði ekki að nafnið mitt standi á bévítans umslaginu! Svo ég segji nú við hann;

Ég ; excuse me, but i´m María Rut Beck.... is that for me?
Ókunnugi umslagsmaður ; Ok, yes very nice!
Ég; uhhh... ok... (tek umslagið sem hann æstur réttir mér)...thanks
Ó.maður ; yes inside is an advertize in english and french! me and my wife have an IRONING COMPANY!!!
Ég; uhh ok.....
Ó.m ; yes very nice you just call and we come take your stuff, we call when ready and bring back! all very nice my wife a designer, very good we can do everything!

Sumsé annað hvort er það bara svona common plága að ég sé í óstraujuðum fötum eða að nafnið mitt sé einhver svona indicator að ég sé straufrík!
hahahahahahahahahahah

já en vá það er sko langt síðan ég hef lent í eins skrýtnu atviki! þetta var alveg magnað!

jæja þangað til næst...
Dr.M (þessi í krumpuðu fötunum)

5 comments:

Anonymous said...

heehehehehehehehehe jiii en fyndið :) very nice...... var þetta kannski Borat sjálfur? ;)

Anonymous said...

Hahaha díses :) en hverjar ætli líkurnar séu á því að þau komi aftur með fötin? bara pæling ;)

Anonymous said...

hahahaahahahah etta er yndi... heyri þetta alveg á sjúklegri bjagaðri ungversku... gunna dóra

Tryggvi hinn leikbæri said...

Láttu hann fá skítug nærföt og sjáðu hvað gerist.

Unknown said...

hahaha þetta er nú alveg frábært...þessir blessuðu ungverjar!!

kv. Þurý