Wednesday, December 20, 2006

það eru að koma JÓÓÓÓL!!!!!

jújú hvað haldiði nema stelpurnar búnar svoleiðis að skreyta hjá sér í höllinni sinni
tjahh það má alltaf halda í vonina að það væri kannski grenilykt af tesco trénu góða... nema svo var ekki.....
en fegurðin leyndi sér ekki...... "ég barðist gegnum jólskraut og jólaflaut... og þetta fann ég fyyyyrir miiiig"
"JÓL.. komin einusinni aftuuur, JÓL en þau fyrstu sem við eigum... JÓÓL og ég leira gjöf handa þér"

VIÐ ÓSKUM YKKUR GLEÐILEGRA JÓLA...
ÞAÐ ER ALVEG BANNAÐ AÐ GÓLA...
EKKI GLEYMA AÐ HJÓLA..
ÁN ÞESS AÐ SPÓLA...
EN HVERNIG VÆRI AÐ BJÓÐA...
JÓLA

H&M "friður á jörð milli manna og meyja"

Monday, December 18, 2006

ojj bara.....

helvítis klippifólk!!! shitt hvað ég er ekki í góðu skapi núna!!! fer í sakleysi mínu í klippingu og hann bara tekur af mér hárið!!!!
ekki sátt... meira svona BRJÁLUÐ!!!!!
ojj....
Hrabbs

Sunday, December 10, 2006

...hummm....

ætli Stekkjastaur viti ekki alveg örugglega að ég er í Ungverjalandi?........
Dr.M....

Wednesday, December 6, 2006

18 dagar í jól.....

... vó hvað tíminn líður hratt. Erfitt að trúa að þessi önn sé að verða búin!! svona í alvöru HVAÐ GERÐIST?? hah? ég meina seinast þegar ég vissi var september... æjj ohh þýðir þetta að ég sé orðin gömul? svo segja þeir, tíminn líður hraðar eftir því sem maður eldist.. shiii hvað ég hlít þá að vera orðin huuuund gömul ;) hehe...
en hvað með það.. önnin er að verða búin, maður er farin að sja í skottið á prófi dauðans.. úff ég fæ sting í magann við tilhugsunina... úff... góðu fréttirnar eru samt að það er eina prófið sem ég þarf að taka :D víjúvává... klapp og fagnaðarlæti... en það er samt ekkert "bara"... 3 fög í einu profi... tekur tíma að undirbúa sig fyrir það....
en well well... ungverskan bíður.. get ekki látið það gerst að falla í því ;) hihi
allavega heyri í ykkur seinna...
yfir og út...
dr.Hrafnhildur

Saturday, December 2, 2006

wasabi rokkar!

Djöss snilld er þetta að geta pantað sushi heim!! mér finnst það magnað....

Monday, November 27, 2006

ohh það var svo fábært.....

... þegar Ellen var í heimsókn hjá okkur.... við héldum rosa skemmtilegt party og rosa gaman....
fórum til Búdapest og versluðum solið... hehe María fékk að drekka bæði mohijto og straberry daquiry á fridays :)

híhí við skemmtum okkur svoooo vel :D... við erum einfaldlega bara svo sætar saman....

híhíhí......
ELLEN... TAKK FYRIR FRÁBÆRA DAGA... FÁRÁNLEGA SKEMMTILEGT AÐ HAFA ÞIG HÉRNA HJA OKKUR :D
Posted by Picasa

Thursday, November 23, 2006

 Posted by Picasa

jæja við sjáum til....

já nú á að taka höndum saman og slá öllu uppí kæruleysi! við hérna ( þ.e. Hrafnhildur og María) höfum barasta ákveðið að gera sameiginlegt blogg þar sem að frammistaða okkar í bloggheimum hingað til hefur ekki verið uppásitt besta svona í sitthvoru laginu og þar sem mínus og mínus verður plús ( þær eru ekki í læknisfræði fyrir ekki neitt ;) ) þá hlýtur þetta að verða betra svona!
ætla nú ekki að segja meira í bili.....jæja bless...